Fjölmörg stór félagaskipti fyrir nýja handbolta tímabilið hafa verið staðfest. Dika Mem, Simon Pytlick og Julian Köster eru dæmi um leikmenn sem hafa ákveðið að söðla um og ganga til nýs liðs. Hér fyrir neðan er listi um fleiri leikmenn.
Dika Mem
Þetta er ein stærstu félagaskipti í sögu Bundesligunnar: Dika Mem, fyrirliði FC Barcelona, mun spila fyrir Füchse Berlin frá 2027. Hann skrifaði undir samning til ársins 2031.
Simon Pytlick
Vegna yfirvofandi brottfarar Lasse Anderssons hefur Füchse Berlin þurft að vinna hörðum höndum til að fylla hans skarð. Þetta hefur að minnsta kosti að hluta verið unnið úr: Þótt Andersson muni yfirgefa Füchse árið 2026, mun Pytlick ekki hafa samning við höfuðborgarfélagið fyrr en árið 2027. Þangað til er það enn bundið við SG Flensburg-Handewitt.
Oscar Vind
Vind, sem hefur nýlokið tímabilinu með danska félaginu GOG Handbold, tekur við af Tim Hornke hjá SC Magdeburg en Hornke mun enda ferilinn í lok yfirstandandi tímabils.
Sergey Hernandez
Hernandez mun yfirgefa Magdeburg í sumar. En félagaskipti hans til FC Barcelona hafa legið yfir frá árinu 2025.
Jannick Green
Hann er að flytja frá Paris Saint-Germain aftur til heimalands síns. Hann mun spila þar með HÖJ Elite. Þar verður Green liðsfélagi þeirra Till Klimpke og Lasse Andersson.
Lasse Andersson
Lasse nýtti ákvæði í samning sínum, en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við danska félagsliðið HÖJ Elite. Hann ásamt Jannick Green munu spila í dönsku 2.deildinni á komandi tímabili.
Julian Köster
Hann mun yfirgefa íslendinga liðið Gummersbach í sumar. Köster hefur skrifað undir samning við THW Kiel. Þýski landsliðsmaðurinn skrifaði undir samning við THW Kiel til ársins 2030.
Domen Makuc
Kiel hefur að auki sótt Makuc fyrir komandi tímabil. Leikstjórnandinn kemur til liðsins frá FC Barcelona þar sem hann varð evrópumeistari með Viktori Gísla. Makuc samdi einnig til ársins 2030.
Justus Fischer
THW Kiel hefur einnig sótt þennan 23 ára leikmann frá Hannover-Burgdorf. Hann hefur þó „aðeins“ skrifað undir tveggja ára samning við nýja félagið sitt. Kiel hefur einnig fengið nýjan þjálfara fyrir komandi tímabil og því verður mjög spennandi að fylgjast með þeim.
Emil Nielsen
Það er mikil framganga er hjá liði Veszprém á þessum mundum. Kaupin á þessum einstaka markmanni eru stór skilaboð til allra liða. Nielsen, sem vann Meistaradeildina með FC Barcelona, er samningsbundinn til 2029.
Aymeric Minne
Aymeric Minne mun spila með Flensburg í Bundesliguni á komandi tímabili. Hann skiptir til Flensburg frá franska liðinu HBC Nantes.






