HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild karla

Tekur Guðmundur við af nafna sínum?

Tekur Guðmundur við af nafna sínum?

Mynd: mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er Guðmundur Helgi Pálsson í viðræðum við Fjölni um að taka við þjálfun meistaraflokks karla. Fari svo að Guðmundur Helgi taki við liðinu þá væri hann að taka við af nafna sínum sem að Fjölnir staðfesti í dag að væri hættur með liðið.

Guðmundur Helgi var í fréttunum fyrr í vor en samkvæmt handkastinu hafði hann tekið að sér að þjálfa meistarflokk kvenna hjá Afturledingu en hætti svo skyndilega við til þess að taka við kvennaliði ÍR en ekkert varð úr því að lokum. 

Harpixið hefur heimildir fyrir því að Guðmundur hafi verið í viðræðum við Fjölni fyrr á árinu til þess að taka mögulega við kvennaliði félagsins en nú bendir allt til þess að hann taki við karlaliðinu. Hann hefur áður þjálfað karlalið Fram og ÍR ásamt kvennaliði Aftureldingar. 

Gunnar Valur Arason yfirþjálfari Handknattleiksdeildar Fjölnis hefur líka verið orðaður við starfið. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  4. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora