HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Yngri flokkar

Þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar í 3. flokks leik

Þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar í 3. flokks leik

Mynd: Stjarnan handbolti

Mönnum var heitt í hamsi í viðureign Harðar á Ísafirði og Stjörnunnar í 3. flokk karla um helgina og hefur Handknattleiksdeild Stjörnunnar birt yfirlýsingu vegna málsins en samkvæmt heimildum og myndskeiði sem er í dreifingu virðist vera að þjálfari Harðar slái til þjálfara Stjörnunnar eftir leik liðana sem lauk með tíu marka sigri Harðverja. 

Í yfirlýsingunni frá félaginu kemur fram að félagið muni vísa málinu til HSÍ.

Yfirlýsing Stjörnunnar: 

"Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar fordæmir atvik sem varð síðastliðna helgi í leik Harðar og Stjörnunnar í 3. flokki karla á Ísafirði, þar sem þjálfari Harðar veittist að þjálfara Stjörnunnar og hafði í frammi hótunum við hann.

Stjórn Handknattleiksdeildar Stjörnunnar áréttar að þjálfarar og annað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar skuli ávallt sýna gott fordæmi í samskiptum, hvort sem er utan vallar eða innan.

Málinu verður vísað til HSÍ til þóknanlegrar meðferðar."
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Stjarnan vann KA í endurkomu Bjarna ÓfeigsOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora