FRÉTT
Þór sigraði Stjörnuna í markaleik

Mynd: Þór handbolti
Fréttir sem festast...

Mynd: Þór handbolti
Þór hafði betur gegn Stjörnunni í Olísdeild karla í kvöld en leiknum lauk með fimm marka sigri Þórs, 37–32.
Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 5–2 eftir fimm mínútna leik. Stjörnumenn náðu þó að vinna sig inn í leikinn og komust yfir í fyrsta sinn þegar staðan var 6–7. Liðin skiptust á að hafa forystuna það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Stjarnan leiddi með einu marki í hálfleik, 16–17.
Stjörnumenn byrjuðu síðari hálfleikinn betur og komust í 16–18 en þá tóku Þórsarar við sér. Heimamenn skoruðu sex mörk gegn einu á næstu mínútum og breyttu stöðunni í 22–19. Þórsarar héldu áfram að bæta við forskotið og náðu mest sjö marka forystu þegar staðan var 32–25. Stjarnan náði ekki að brúa bilið og Þór fagnaði að lokum fimm marka sigri, 37–32.
Bertram Simonsen var markahæstur Þórs með sjö mörk, Hafþór Már Vignisson kom næstur með sex mörk. Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson atkvæðamestur með ellefu mörk en Matthías Dagur Þorsteinsson og Tandri Már Konráðsson skoruðu fimm mörk hvor.
Markaskorarar Þórs:
Bertram Simonsen 7,
Hafþór Már Vignisson 6,
Mikkel Bak Scheumann Jensen 5,
Þórður Tandri Ágústsson 5,
Brynjar Hólm Grétarsson 4,
Hákon Ingi Halldórsson 4,
Jóhann Geir Sævarsson 3,
Oliver Möller Christensen 2,
Oddur Grétarsson 1.
Markaskorarar Stjörnunnar:
Ísak Logi Einarsson 11,
Matthías Dagur Þorsteinsson 5,
Tandri Már Konráðsson 5,
Gauti Gunnarsson 3,
Jóhannes Bjorgvin 3,
Bjarki Jóhannsson 2,
Jóel Bernburg 2,
Tóki Friðriksson 1.