HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Þórey Anna framlengir við Val

Þórey Anna framlengir við Val

Mynd: Valur handbolti

Landsliðskonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur framlengt samninginn sinn við Val til ársins 2029. 

Þórey Anna gekk til liðs við Val árið 2020 og hefur síðan þá verið einn allra besti leikmaður liðsins og deildarinnar. 

„Það eru frábær tíðindi fyrir félagið að Þórey sé búin að framlengja samninginn sinn. Hún hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og einnig verið frábær liðsmaður. Þórey býr yfir miklum gæðum og hefur hún sýnt það bæði með Val og Íslenska landsliðinu og verið einn besti leikmaður deildarinnar. Hún er mikilvægur leiðtogi innan sem utan vallar og mun hún án efa miðla sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins" er haft eftir Antoni Rúnarssyni þjálfara Vals í tilkynningunni. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  3. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  4. Livey sér um útsendingar handboltapassans í veturErlendar fréttir
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora