HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
Erlendar fréttir

Þýski boltinn er farinn af stað

Þýski boltinn er farinn af stað

Mynd: thw-handball.de

Þýska úrvalsdeildin fór af stað í dag þegar Kiel tók á móti Lemgo. Leikurinn var nokkuð jafn en fór svo að Kiel sigraði með x mörkum. Þetta var fyrsti mótsleikur þeirra Domen Makuc og Julian Köster fyrir Kiel en sá síðarnefndi yfirgaf Íslendinga liðið Gummersbach í sumar, Makuc kom frá Barcelona. Köster skoraði 3 mörk og átti 3 stoðsendingar á meðan Makuc skoraði 6 mörk og var með 1 stoðsendingu. 

Lokatölur 35 - 27


Í seinni leik dagsins átti Fuchse Berlin við Melsungen. Fyrri hálfleikur var vægast sagt óspennandi en hálfleikstölur voru 17 - 9. Síðari hálfleikur var þó mun jafnari og komust Melsungen afar nálægt því að jafna leikinn á síðustu 5 mínútum leiksins þegar að þeir tóku 4-1 kafla. Það dugði þó ekki til og endaði leikurinn 33 - 31 fyrir Berlínar refunum. Reynir Þór Stefánsson endaði leikinn með 4 mörk úr 8 skotum og 2 stoðsendingar. 

Þetta var fyrsti leikur Johannes Golla fyrir Melsungen eftir að hafa komið til þeirra í sumar. 


Á morgun eru svo tveir leikir. Arnór Þór Gunnarsson mætir með sína menn í Bergischer þegar þeir spila gegn TVB Stuttgart í fyrri leik dagsins. Arnar Freyr Arnarsson spilar svo sinn fyrsta leik fyrir Flensburg þegar þeir fá Eisenach í heimsókn. 


Leikir morgundagsins:

TVB Stuttgart - Bergischer HC kl 17:00 (Arnór Þór Gunnarsson)

Flensburg - Eisenach kl 18:00 (Arnar Freyr Arnarsson)


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Meiðslavandræði í Kórnum?Olísdeild karla
  2. Er Víkingur að draga liðið sitt úr keppni korteri í mót?Olísdeild kvenna
  3. 12. Dagar í Olísdeild karla: 12. SætiOlísdeild karla
  4. 11. Dagar í Olísdeild karla: 11. SætiOlísdeild karla
  5. 10. Dagar í Olísdeild karla: 10. SætiOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora