Valur hafði betur gegn ÍBV í Olísdeild karla í kvöld. Gunnar Róbertsson fór á kostum í liði heimamanna og skoraði 13 mörk.
Valsmenn tóku frumkvæðið strax í upphafi og náðu fimm marka forskoti á fyrstu tíu mínútunum. Eyjamenn áttu erfitt með að finna leið fram hjá Björgvini Páli Gústavssyni í marki Vals og heimamenn höfðu góð tök á leiknum. Valur leiddi með sex mörkum í hálfleik, 19–13.
Valsmenn héldu áfram þar sem frá var horfið í síðari hálfleik og juku forskotið enn frekar. Eyjamenn reyndu að saxa á forskotið en náðu aldrei að ógna forystu heimamanna að ráði. Valur sigldi að lokum öruggum átta marka sigri í höfn.
Lokatölur Valur 36 - 28 ÍBV
Gunnar Róbertsson var langmarkahæstur Valsmanna með 13 mörk úr 16 skotum. Tjörvi Týr Gíslason og Bessi Teitsson komu næstir með fimm mörk hvor.
Hjá ÍBV var Atli Steinn Arnarson markahæstur með sjö mörk en Sveinn José Rivera skoraði fimm.
Markaskorarar Vals:
Gunnar Róbertsson 13, Tjörvi Týr Gíslason 5, Bessi Teitsson 5, Daníel Montoro 4, Arnór Snær Óskarsson 4, Allan Norðberg 2, Bjarni I Selvindi 1, Ágúst Ingi Óskarsson 1, Jón Ásgeir Eyjólfsson 1.
Markaskorarar ÍBV:
Atli Steinn Arnarson 7, Sveinn José Rivera 5, Magnús Dagur Jónatansson 4, Anton Frans Sigurðsson 3, Daníel Þór Ingason 2, Dagur Arnarsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Jason Stefánsson 2, Haukur Leó Magnússon 1.






