Víkingur sigraði Selfoss með sex mörkum í Olísdeild karla í kvöld en leiknum lauk með 28–34 sigri gestanna.
Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og komust í 8–5 eftir tæplega tólf mínútna leik. Víkingar náðu þó að vinna sig aftur inn í leikinn og jöfnuðu metin í 12–12. Liðin skiptust á að hafa forystuna undir lok fyrri hálfleiks en staðan var jöfn í hálfleik, 16–16.
Selfoss komst í 17–16 í upphafi síðari hálfleiks en þá tóku Víkingar við sér og skoruðu fimm mörk gegn einu hjá heimamönnum. Víkingar náðu fjögurra marka forystu þegar staðan var 19–23 og héldu áfram að bæta við forskotið. Selfyssingar náðu ekki að brúa bilið og Víkingur fagnaði að lokum sex marka sigri, 28–34.
Sigurður Páll Matthíasson var markahæstur Víkinga með ellefu mörk úr tólf skotum. Rökkvi Pacheco Steinunnarson átti einnig stórleik í marki Víkings en hann varði 19 skot og var með 40% markvörslu. Rökkvi skoraði einnig tvö mörk á lokamínútum leiksins.
Hjá Selfossi voru Hákon Garri Gestsson, Anton Breki Hjaltason og Hannes Höskuldsson markahæstir með sex mörk hver.
Markaskorarar Víkings:
Sigurður Páll Matthíasson 11,
Jón Karl Einarsson 6,
Gunnar Hrafn Pálsson 5,
Kristján Helgi Tómasson 4,
Ísak Óli Eggertsson 3,
Ásgeir Snær Vignisson 2,
Rökkvi Pacheco Steinunnarson 2,
Kristófer Snær Þorgeirsson 1.
Markaskorarar Selfoss:
Hákon Garri Gestsson 6,
Anton Breki Hjaltason 6,
Hannes Höskuldsson 6,
Guðjón Baldur Ómarsson 3,
Sveinn Ísak Hauksson 2,
Tryggvi Sigurberg Traustason 2,
Ragnar Hilmarsson 1,
Valdimar Örn Ingvarsson 1,
Skarphéðinn Steinn Sveinsson 1.






