HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Grill66deild kvenna

Afturelding vann nágrannaslaginn

Afturelding vann nágrannaslaginn

Mynd: Helgithphotography

Fjölnir og Afturelding mættust í kvöld í Grill66 deild kvenna en bæði lið höfðu unnið fyrstu tvo leikina sína. 

Leikurinn var jafn til að byrja með en svo settu Mosfellingar í annan gír og leiddu 9-14 í hálfleik. Afturelding komst svo átta mörkum yfir í seinni hálfleiknum og allt leit út fyrir að leikurinn væri búinn en þá svöruðu Fjölniskonur fyrir sig og náðu að minnka muninn niður í þrjú mörk. Aftureldingsstúlkur héldu haus og unnu að lokum 26-30 og eru komnar á toppinn ásamt Víking. 

Markaskorarar Fjölnis:

Sara Kristín Pedersen - 7 Mörk
Berglind Benediktsdóttir - 5 Mörk
Sólveig Ása Brynjarsdóttir - 5 Mörk
Stefanía Ósk Engilbertsdóttir - 4 Mörk
Signý Harðardóttir - 3 Mörk
Hildur Sóley Káradóttir - 2 Mörk

Markvarsla:

Brynja Kristín Guðbrandsdóttir - 3 Varin
Sara Xiao Reykdal - 3 Varin

Markaskorarar Aftureldingar:

Katrín Helga Davíðsdóttir - 9 Mörk
Matthildur Lóa Baldursdóttir - 5 Mörk
Andrea Ósk Þorkelsdóttir - 4 Mörk
Susan Ines Barinas Gamboa - 3 Mörk
Karen Hrund Logadóttir - 2 Mörk
Mattý Rós Birgisdóttir - 2 Mörk
Vera Pálsdóttir - 2 Mörk
Ásdís Halla Helgadóttir - 1 Mark
Kristín Ása Egilsdóttir - 1 Mark
Rakel Dórothea Ágústsdóttir - 1 Mark

Markvarsla:

Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir - 13 Varin
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Aron Leó og Ragnar fóru á kostum í markaveislu á SelfossiGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. FH sigraði HK í Olísdeild karlaOlísdeild karla
  4. Valur sigraði ÍBV í Olísdeild karlaOlísdeild karla
  5. Þór sigraði Stjörnuna í markaleikOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora