HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
Olísdeild karla

Allt jafnt á Selfossi

Allt jafnt á Selfossi

Mynd: HSB.Photo

Selfoss tók á móti Stjörnunni í kvöld í Set höllinni. 

Leikurinn var jafn frá byrjun og skiptust leikmenn á að skora á báðum endum vallarinns. Skytturnar tvær, Hákon Garri Gestsson og Ísak Logi Einarsson voru í miklum ham áður en blásið var til hálfleiks en Ísak Logi var með 8 mörk í fyrri hálfleik fyrir Stjörnuna og Hákon Garri með 7 fyrir Selfoss. Hálfleikstölur voru 17 - 19 fyrir Stjörnunni. Spennan hélt síðan áfram í seinni hálfleik og síðustu 10 mínúturnar voru hreinlega gæsahúðar mínútur. Þegar þessar loka 10 mínútur hófust þá var staðan 32 - 29 fyrir heimamönnum, Stjarnan saxaði þó niður forskotið og komust svo yfir þegar um 5 mín voru til leiksloka með marki frá Gauta Gunnarssyni 32 - 33. Enn var jafnt í leikjum og fór það þannig að Stjarnan klúðraði sókn sinni sem hefði getað komið þeim í forskot þegar um 20 sek voru eftir af leiknum, þá brunaði Selfoss upp og fiskaði víti. Staðan þarna 34 - 34. Á punktinn steig Tryggvi Sigurberg Traustason, fyrirliði Selfoss og á móti honum stóð Sigurður Dan Óskarsson í marki Stjörnunnar. Tryggvi átti góða tilraun en Sigurður Dan sá við honum og tryggði Stjörnunni gott jafntefli. 


Lokatölur 34 - 34. 



Markaskorarar Selfoss:

Hákon Garri Gestsson 10,

Jónas Karl Gunnlaugsson 7, 

Guðjón Baldur Ómarsson 6, 

Valdimar Örn Ingvarsson 5, 

Tryggvi Sigurberg Traustason 3, 

Ragnar Hilmarsson 3,

Haukur Páll Hallgrímsson 1



Markaskorarar Stjörnunnar:


Ísak Logi Einarsson 12

Tandri Már Konráðsson 6

Gauti Gunnarsson 5

Dagur Sverrir Kristjánsson 3

Bjarki Jóhannsson 2

Jóel Bernburg 2

Tóki Friðriksson 2

Jóhannes Bjorgvin 1

Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 1


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Leystur undan samning hjá SelfossOlísdeild karla
  2. Fjölnismönnum dæmdur 10-0 sigurGrill66deild karla
  3. Er Birkir farinn að þjálfa kvennalið Aftureldingar?Grill66deild kvenna
  4. Fer Stiven til Vals eftir allt saman ?Olísdeild karla
  5. Unglingalandsliðskona lánuð í StjörnunnaOlísdeild kvenna
Vefumsjón: Gonora