HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild karla

Er Ólafur Brim á heimleið?

Er Ólafur Brim á heimleið?

Mynd: mbl.is/Eggert Johannesson

Samkvæmt heimildum Harpixins þá er Ólafur Brim Stefánsson í viðræðum við nokkur félög í Olís deildinni um að ganga til liðs við þau en hann verður ekki áfram í herbúðum ítalska félagsins Junior Fasano. 

Harpixið hafði samband við Ólaf sem staðfesti fregnirnar en vildi þó ekki gefa upp hvaða félög hann væri í viðræðum við en samkvæmt heimildum Harpixins þá eru félögin Víkingur, Stjarnan og HK þar sem hann er uppalinn. Ólafur sagðist einnig vera í viðræðum við félög erlendis. 

Ólafur hefur komið víða við á ferlinum en hann hefur leikið með HK, Val, Fram, Gróttu, Stjörnunni, Herði, í Kúveit og núna síðast á Ítalíu. 

Ólafur var í yngri landsliðum íslands og er sterkur á báðum endum vallarins. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Aron Leó og Ragnar fóru á kostum í markaveislu á SelfossiGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. KA sigraði AftureldinguOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora