HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
Olísdeild karla

Framarar köstuðu frá sér 9 marka forskoti

Framarar köstuðu frá sér 9 marka forskoti

Mynd: Fram handbolti

Framarar tóku á móti ÍBV klukkan 17:30 í dag eftir að leiknum hefði verið frestað vegna veðurs í gær. 

Það er óhætt að segja að Framarar hefðu verið með öll tökin á leiknum en staðan eftir 25 mínutur var 19-10 fyrir Fram. Eyjamenn náðu aðeins að klóra í bakkann og staðan í hálfleik var 19-14. Seinni hálfleikurinn var hins vegar mjög spennandi og má segja að Framarar hafi verið sjálfum sér verstir en þeir köstuðu leiknum frá sér ásamt því að hafa fengið mikið af óþarfa tveimur mínutum. 

Eyjamenn nýttu sér þetta og unnu að lokum þriggja marka sigur 30-33 og má ætla að Framarar muni sofa mjög illa í nótt. 

Markaskorarar Fram:

Haukur Ingi Hauksson - 11 Mörk
Max Emil Stenlund - 6 Mörk
Alex Unnar Hallgrímsson - 4 Mörk
Dagur Fannar Möller - 4 Mörk
Steinar Már Einarsson Clausen - 2 Mörk
Dánjal Rangarsson - 1 Mark
Kristófer Tómas Gíslason - 1 Mark
Ívar Logi Styrmisson - 1 Mark

Markvarsla:

Stefán Freyr Jónsson - 13 Varin
Jóhann Ágústsson - 2 Varin

Markaskorarar ÍBV:

Dagur Arnarson - 7 Mörk
Sigtryggur Daði Rúnarsson - 5 Mörk
Sveinn José Rivera - 5 Mörk
Anton Frans Sigurðsson - 4 Mörk
Daníel Þór Ingason - 3 Mörk
Magnús Dagur Jónatansson - 3 Mörk
Andri Magnússon - 3 Mörk
Atli Steinn Arnarson - 1 Mark
Haukur Leó Magnússon - 1 Mark
Kristófer Ísak Bárðarson - 1 Mark

Markvarsla: 

Sigurmundur Gísli Unnarsson - 10 Varin
Petar Jokanovic - 3 Varin
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er Birkir farinn að þjálfa kvennalið Aftureldingar?Grill66deild kvenna
  2. Leystur undan samning hjá SelfossOlísdeild karla
  3. Fer Stiven til Vals eftir allt saman ?Olísdeild karla
  4. Unglingalandsliðskona lánuð í StjörnunnaOlísdeild kvenna
  5. Allan dæmdur í eins leiks bann - má samt spila í kvöldOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora