HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Landslið karla

Gengu frá Ísrael í fyrri hálfleik

Gengu frá Ísrael í fyrri hálfleik

Mynd: HSÍ

U20 landslið karla mætti Ísrael í loka leiknum sínum á Evrópumótinu. 

Íslenska liðið mætti Ísrael í leik um sæti 13-16 á Evrópumótinu í morgun. Íslenska liðið lenti 2-0 undir en eftir það var ekki litið til baka. Þeir sýndu mikla yfirburði gegn slöku liði Ísraels og var staðan 20-9 fyrir Íslandi í hálfleik. 

Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri endaði en íslenska liðið var áfram með yfirhöndina og komst  mest 16 mörkum yfir á tímabili. Leiknum lauk með 12 marka sigri Íslands 35-23.

Markaskorarar: 

Stefán Magni Hjartarson - 7 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 6 Mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson - 6 Mörk
Harri Halldórsson - 3 Mörk
Andri Erlingsson - 3 Mörk
Bessi Teitsson - 3 Mörk
Birgir Leó Stefánsson - 2 Mörk
Ágúst Guðmundsson - 2 Mörk
Dagur Leó Fannarsson - 2 Mörk
Jökull Blöndal Björnsson - 2 Mörk


Markvarsla: 

Alexander Ásgrímsson - 15 Varin 51.72%
Jens Sigurðarson - 5 Varin 35.71%


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Aron Leó og Ragnar fóru á kostum í markaveislu á SelfossiGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. KA sigraði AftureldinguOlísdeild karla
  4. Þór sigraði Stjörnuna í markaleikOlísdeild karla
  5. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora