HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Erlendar fréttir

Íslenskum þjálfurum erlendis fjölgar enn

Íslenskum þjálfurum erlendis fjölgar enn

Mynd: Bækkelagets Sportsklub

Konráð Olavsson hefur verið ráðinn til Norska félagsins Bækkelagets Sportsklubb en þar verður hann yfirmaður handboltamála samhliða því að þjálfa U20 lið félagsins. 

Konráð spilaði hátt í 200 landsleiki fyrir Ísland á ferli sínum sem leikmaður og hefur einnig mikla reynslu af meistaraflokksþjálfun bæði á Íslandi og í Noregi. Konráð hefur þjálfað hjá Stjörnunni, Aftureldingu, KR, KIF Kristiansand og Randesund svo að eitthvað sé nefnt. 

Í tilkynningu félagsins kemur fram að félagið ráðfærði sig við Þóri Hergeirsson sem gaf Konráði sín bestu meðmæli. 


Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Aron Leó og Ragnar fóru á kostum í markaveislu á SelfossiGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. KA sigraði AftureldinguOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Þór sigraði Stjörnuna í markaleikOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora