Íslenska karla U18 landsliðið fór nokkuð auðveldlega í gegnum riðlakeppnina á Evrópumótinu sem haldið er í Serbíu. Liðið vann riðilinn með samtals 32 mörkum.
Liðið hefur keppni í milliriðlum þann 3. ágúst gegn Króatíu og svo gegn Portúgal þann 4. ágúst.
Það verður spennandi að fylgjast með leikjunum en íslenska liðið gæti farið alla leið.