Olísdeild karla hefst í kvöld en spilaðir verða tveir leikir. HK fær KA í heimsókn klukkan 19:00 í Kórnum og svo klukkan 19:30 eigast við Selfoss og Valur í Set höllinni.
HK hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum á undirbúningstímabilinu og það mun klárlega setja strik í reikninginn. Búast má við fjörugum opnunarleik Olísdeildarinnar.
Í seinni leik kvöldsins verður áhugavert einvígi. Selfoss mætir til leiks með ungt og ferskt lið en verða án markahæsta leikmann liðsins frá síðasta tímabili sem og fyrirliða, Hannes Höskuldsson. Hannes gekkst undir aðgerð í sumar og mun ekki verða með fyrr en í október.
Valsmenn mæta einnig með skemmtilegt lið. Miklar breytingar eru á hóp Valsmanna en þeir hafa sótt 4 leikmenn fyrir þetta tímabil en einnig hafa 7 leikmenn hætt eða farið í önnur félög.
Báðir leikir verða í beinni á Handboltapassanum í gegnum Liveysports.
Olísdeild karla:
HK - KA 19:00. Kórinn
Selfoss - Valur 19:30. Set-höllin





