HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Olísdeild kvenna

Víkingur dregur sig úr efstu deild 9 dögum fyrir fyrsta leik ( Staðfest )

Víkingur dregur sig úr efstu deild 9 dögum fyrir fyrsta leik ( Staðfest )

Mynd: Víkingur handbolti

Víkingur mun ekki tefla fram liði í Olísdeild kvenna í ár eins og Harpixið skrifaði um í morgun. Eva Hrund Harðardóttir sagði upp störfum hjá félaginu í gær eftir einungis þrjá mánuði í starfi en sumarið hefur reynst liðinu mjög erfitt og var þessi ákvörðun það sem fyllti mælirinn. Víkingur átti að mæta Val í opnunarleik Olísdeildar kvenna eftir 9 daga en ljóst er að ekkert verður úr því. Víkingur mun í staðinn taka sæti í Grill66 deildinni í vetur.

Óvíst er hvort að þetta breyti öllu mótafyrirkomulaginu en ákveðið var að stækka Olísdeild kvenna á ársþingi HSÍ í 10 lið og fengu Víkingur og Grótta þá sæti í deildinni.

Samkvæmt heimildum Harpixins var leikmönnum Víkings tjáð þetta á æfingu nú í kvöld og er spurning hvort að einhverjar forsendur fyrir samningum séu nú brotnar. 

Samkvæmt því sem Harpixið kemst næst þá verður Selfossi boðið að taka sæti Víkings í efstu deild. 
Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  2. Ekkert gengur hjá FjölniGrill66deild karla
  3. Valur vann með tíu í 70 marka leikOlísdeild karla
  4. Haukar burstuðu FramOlísdeild karla
  5. Agnar Smári aftur til EyjaGrill66deild karla
Vefumsjón: Gonora