HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Auglýsing
← Erlendar fréttir

Yngsti bróðirinn að gera góða hluti

Yngsti bróðirinn að gera góða hluti

Mynd: Handballstatz

Það þekkja kannski flestir handbolta aðdáendur Elias Ellefsen á Skipagotu leikmann Kiel og Færeyska landsliðið en það vita það ekkert allir að hann á tvo yngri bræður sem eru líka handboltamenn. 

Sá yngsti, Boas Ellefsen á Skipagotu er að gera frábæra hluti á Evrópumóti U18 landsliða en hann er markahæsti leikmaður mótsins með 27 mörk eftir 2 leiki sem jafngildir 13.5 mörkum að meðaltali í leik. Það sem vekur athygli er að Boas er einungis 16 ára gamall og er því að spila upp fyrir sig um tvö ár.

Þrátt fyrir ungan aldur er hann líka að gera það gott í heimalandinu með uppeldisfélaginu H71 en hann var valinn besti leikmaður deildarinnar, besti nýliði deildarinnar og besti sóknarmaður deildarinnar á síðasta tímabili. 

Það verður gaman að fylgjast með framþróun þessa efnilega leikmanns en þetta er nafn sem fólk ætti að leggja á minnið.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Aron Leó og Ragnar fóru á kostum í markaveislu á SelfossiGrill66deild karla
  2. Víkingur sótti tvö mikilvæg stig í fallbaráttuslagOlísdeild karla
  3. FH sigraði HK í Olísdeild karlaOlísdeild karla
  4. Valur sigraði ÍBV í Olísdeild karlaOlísdeild karla
  5. Þór sigraði Stjörnuna í markaleikOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora